Posts Tagged ‘viral marketing’
Markaðssetning forseta
Kosningabarátta Baracks Obama á leið hans í bandaríska forsetastólinn verður síðar notuð sem dæmi um fullkomna markaðsherferð. Þetta er mat flestra markaðssérfræðinga sem fylgdust vel með kosningaherferð Obama undanfarin nærri tvö ár, þeirra á meðal John Quelch hjá Harvard Business Review.
Barack Obama og fylgdarlið hans rak það góða “viral” markaðs- / kosningaherferð að annað eins hefur ekki áður sést. Obama notaði vefinn út í ystu æsar, var með vandaðar síður og heimasvæði á öllum fyrirferðamestu samfélagsvefjunum sem fyrirfinnast á netinu, hvort sem það var You Tube, Facebook, Twitter, Myspace, LinkedIn eða samfélagsvefir sem við könnumst lítið við hér á landi; Eons, Glee, Faithbase, MyBatanga og BlackPlanet svo einhverjir séu nefndir. Aðalsíða herferðarinnar var þó BarackObama.com þar sem hann hélt úti öflugu bloggi og þar var einnig að finna tengla á allar opinberar stuðningssíður Obama á vefnum.
Með þessari aðferð náði Barack Obama að stækka kjósendahóp sinn til mikilla muna og ná til yngra fólks en hann hefði ella gert.
Obama notaði vefinn einnig til þess að ná í fjárframlög með góðum árangri. Á öllum vefsvæðum sem sett voru upp í hans nafni gafst fólki kostur á að styðja kosningaherferð hans með fjárframlögum. Auk þess settu tugir þúsunda stuðningsmanna Obama upp eigin vefsvæði þar sem þeir tóku á móti fjárframlögum í kosningasjóð Obama.
Allt hjálpaði þetta til við að kosningasjóður Obama varð rúmar 600 milljónir bandaríkjadala, sem er nærri því tvöföld sú upphæð sem John Kerry og George W. Bush höfðu úr að spila í kosningabaráttunni árið 2004.
