Posts Tagged ‘Mobile’
Ratsjá
Ratsjá auglýsir nú á forsíðu já.is. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að bjóða þjónustu fyrirtækisins til einstaklinga og fyrirtækja sem ekki hafa áður nýtt sér þjónustu birtingafyrirtækis en einnig sá að kynnast nýjum vef af eigin raun. Ratsjá sérhæfir sig í ráðgjöf við gerð og birtingu auglýsinga. Til þess notar fyrirtækið hefðbundnar nálganir birtingarhúsa og styðst m.a. við gögn úr rafrænum mælingum Capacent á ljósvakamiðlum. Ratsjá leggjur mikla áherslu á þáttöku ráðgjafa í ákvörðunarferlinu frá fyrstu skrefum til loka verkefna auk þess sem við lítum á nýsköpun í þjónustu sem skyldu. Undanfarið ár hefur Ratsjá lagt mikinn metnað í vefbirtingar og árangursmælingar tengdum þeim. Fyrirtæki virðast vera að færa stærri hluta af sínu markaðsfé á vef auk þess sem nýir miðlar eru í boði. Seinasta ár var klárlega ár samfélagsvefja með Facebook í fararbroddi, Ratsjá hefur náð mjög góðum mælanlegum árangri á þessum vefjum í bland við hefðbundna vefmiðla. Að lokum er það yfirsýn og þekking á miðlum og markhópum sem gerir útslagið, það ásamt nánu og miklu sambandi við viðskiptavini og auglýsingastofu er lykillinn að góðum árangri. Hjá Ratsjá er enginn kúnni of stór eða lítill, áskorunin liggur í verkunum og árangrinum en ekki stærðinni. Fyrirtækið hefur á undanförnu ári unnið allt frá umfangsmiklum auglýsingaherferðum þvert á alla miðla niður í lítil sérhæfð verkefni á Facebook fyrir einyrkja eða félagasamtök. Við bjóðum því alla áhugasama velkomna, endilega sendið okkur fyrirspurn á ratsja@ratsja.is eða hafið samband í síma 512-4500. Við minnum á að Ratsjá er að finna á Facebook , LinkedIn , Twitter og á sérstakri mobile-síðu.
Mobile Advertising
Ratsjá hefur frá stofnun kannað markaðinn fyrir mobile auglýsingar. Framboðið hefur verið lítið ef frá eru talin textaskilaboð sem símafyrirtækin bjóða uppá en landslagið er smám saman að breytast. Áhugaverðir vefir Nova og nú nýlega M-ið hjá símanum hafa bætt við auglýsingamöguleikum auk þess sem Mbl hefur átt góða innkomu. Þrátt fyrir gríðarlega farsímaeign Íslendinga og fjölda tækja með góðum skjá og hröðum tengingum virðist vefnotkun Íslendinga í gegnum farsíma ekki haldast í hendur við vefnotkun víða annars staðar. Margt hefur auðvitað áhrif á þetta s.s. verð á þjónustu, almenn tölvueign, stuttur ferðatími o.s.frv. Þetta mynstur virðist vera að breytast, farsímanetnotkun er að aukast og því sjáum við tækifæri í auglýsingum á þessum miðli, bæði vegna formsins en einnig vegna þess að við náum til viðskiptavina þegar þeir eru á ferðinni, ekki endilega á skrifstofunni eða heima.
Nokkur vandamál koma þó upp við svona markaðssetningu eins og t.d. nákvæm árangursmæling því hefðbundin vefgreiningartól virka illa eða ekki í þessum miðli. Við stukkum því til um leið og við fréttum af nýjum mobile vef já.is ( http://m.ja.is ), settum þar inn litla auglýsingu og settum samhliða því upp litla mobile síðu fyrir Ratsjá ( http://m.ratsja.is ) sem í raun og veru er einungis tweet feed frá starfsfólki Ratsjár. Tilgangurinn er fyrst og fremst að prófa ný vefgreiningartæki, kynnast miðlinum betur og þeim hópi sem er virkur notandi. Fyrstu skrefin lofa góðu og við erum að átta okkur betur á mælitækjunum.
Mobile Menningarnótt
Fyrirtækið Ymir Mobile setti upp frábæran farsímavef fyrir Menningarnótt 2008. Hugbúnaðurinn var mjög hraðvirkur og þægilegur í notkun. Perónulega fannst mér hann gjörbreyta upplifun minni af Menningarnótt. Þetta sýnir svart á hvítu hve mikilvæg farsímasamskipti eru orðin og hve tækifærin eru mörg og ónýtt.
Ratsjá ætlar sér að vera á tánum hvað varðar miðlun með farsímum, vonandi verður efnið jafn gott og vefur menningarnætur í ár.