Posts Tagged ‘ja.is’
Mobile Advertising
Ratsjá hefur frá stofnun kannað markaðinn fyrir mobile auglýsingar. Framboðið hefur verið lítið ef frá eru talin textaskilaboð sem símafyrirtækin bjóða uppá en landslagið er smám saman að breytast. Áhugaverðir vefir Nova og nú nýlega M-ið hjá símanum hafa bætt við auglýsingamöguleikum auk þess sem Mbl hefur átt góða innkomu. Þrátt fyrir gríðarlega farsímaeign Íslendinga og fjölda tækja með góðum skjá og hröðum tengingum virðist vefnotkun Íslendinga í gegnum farsíma ekki haldast í hendur við vefnotkun víða annars staðar. Margt hefur auðvitað áhrif á þetta s.s. verð á þjónustu, almenn tölvueign, stuttur ferðatími o.s.frv. Þetta mynstur virðist vera að breytast, farsímanetnotkun er að aukast og því sjáum við tækifæri í auglýsingum á þessum miðli, bæði vegna formsins en einnig vegna þess að við náum til viðskiptavina þegar þeir eru á ferðinni, ekki endilega á skrifstofunni eða heima.
Nokkur vandamál koma þó upp við svona markaðssetningu eins og t.d. nákvæm árangursmæling því hefðbundin vefgreiningartól virka illa eða ekki í þessum miðli. Við stukkum því til um leið og við fréttum af nýjum mobile vef já.is ( http://m.ja.is ), settum þar inn litla auglýsingu og settum samhliða því upp litla mobile síðu fyrir Ratsjá ( http://m.ratsja.is ) sem í raun og veru er einungis tweet feed frá starfsfólki Ratsjár. Tilgangurinn er fyrst og fremst að prófa ný vefgreiningartæki, kynnast miðlinum betur og þeim hópi sem er virkur notandi. Fyrstu skrefin lofa góðu og við erum að átta okkur betur á mælitækjunum.