Posts Tagged ‘facebook myspace beba hi5 orkut samfélagsvefur internet’
Facebook að kaffæra Myspace?
Facebook og Myspace eru vinsælustu samfélagsvefirnir á netinu. Myspace hefur undanfarin ár verið sá stærsti en nú hefur Facebook tekið forystuna og er vöxtur Facebook svo mikill og hraður að ef fram heldur sem horfir mun vefurinn stinga Myspace af í fjölda notenda.
Í apríl síðastliðnum voru skráðir notendur Facebook í fyrsta sinn fleiri en notendur Myspace. Í júní síðastliðnum skráðu 132 milljónir notenda sig inn á Facebook á móti 117 milljónum notenda Myspace. Þetta segir ekki alla söguna því frá því í júní 2007 og fram í júní 2008 jókst notendafjöldi Facebook um 153% á sama tíma og notendum Myspace fjölgaði um aðeins 3%. Það er því ljóst hvert straumurinn liggur.
Á Íslandi hefur orðið gríðarleg aukning á skráðum notendum Facebook. Á einu ári hefur fjöldi íslenskra notenda margfaldast og eru þeir í dag um 60 þúsund. Athygli vekur að íslenskar konur eru mun fleiri á Facebook en karlar.
Aðrir samfélagsvefir, s.s. Hi5, Orkut og Beba hafa einnig verið að bæta verulega í notendahóp sinn þó ekki hafi farið mikið fyrir þeim vefjum hér á landi.