Ratsjá

Ratsjá er fyrirtæki á sviði auglýsinga- og markaðsráðgjafar

Posts Tagged ‘CTR

Facebook og auglýsingar

without comments

Það er ekki langt síðan íslenskum auglýsendum gafst fyrst tækifæri til þess að kynna sínar vörur og þjónustu á samfélagsvefnum Facebook. Snemma í vor sáust fyrstu íslensku auglýsingarnar og síðan þá hafa íslenskir auglýsendur tekið vel við sér enda nýtur Facebook gríðarlegra vinsælda hér á landi. Í dag eru tæplega 60.000 manns skráðir sem íslenskir notendur á Facebook.

Auglýsingapláss á Facebook eru ekki stór heldur aðeins lítil mynd og stuttur texti með slóð á það sem á að auglýsa eins og Facebook notendur þekkja. Virkni auglýsinganna er mæld m.a. með hlutfalli birtinga gagnvart smellum á auglýsingu, á ensku “Click through ratio” – hér eftir CTR. Erlendis hafa auglýsendur orðið fyrir vonbrigðum með CTR á Facebook sem er að meðaltali einungis 0,04%. Þessi tala er fjarri því sem við hjá Ratsjá höfum séð þegar virkni auglýsinga okkar viðskiptavina á Facebook eru mældar en auglýsingar viðskiptavina okkar hafa mælst með frá 0,1% CTR og upp í 0,6% CTR.

Reynslan hefur sýnt okkur að auglýsingaborðar á þremur stærstu vefmiðlum landsins, mbl.is, visir.is og ja.is ná rétt einum tíunda CTR af því sem auglýsingar á Facebook ná, en á stóru miðlunum er CTR yfirleitt á bilinu 0,01% til 0,03%.

Það er eflaust margt sem veldur því að auglýsingar á Facebook ná hærra CTR hlutfalli hér en annars staðar, auk þess að ná hærra hlutfalli en á stóru miðlunum. Íslendingar eru að uppgötva miðilinn og því getur nýjungagirni átt þátt í háu CTR hlutfalli. Þá er textinn knappur sem auglýsendur mega koma fyrir og því grípa sumir þeirra til þess að búa til einhvers konar “teaser” til þess að vekja forvitni þeirra sem sjá auglýsinguna. Þá hefur það einnig mikil áhrif á hátt CTR hlutfall að þeir sem auglýsa á Facebook geta beint auglýsingu sinni markvisst að markhópi sínum. Þannig getur auglýsandinn fyrirfram skilgreint kyn og aldur þeirra sem munu sjá auglýsinguna.

Ef til vill mun CTR hlutfallið lækka eftir því sem auglýsingar á Facebook verða hversdagslegri hér á landi, en þangað til er Facebook mjög vænlegur kostur fyrir auglýsendur.

Written by Benedikt Rafn

september 17, 2008 at 17:24

Skrifað í Fjölmiðlar, Vefur

Tagged with , ,