Ratsjá

Ratsjá er fyrirtæki á sviði auglýsinga- og markaðsráðgjafar

Author Archive

TM, vefur og kvennaknattspyrna

with one comment

tryggurÍslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur verið á mikilli siglingu undanfarin tvö ár og má segja að hápunkti verði náð í lok mánaðarins þegar liðið tekur þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins í Finnlandi. TM hefur staðið að baki íslenskri kvennaknattspyrnu um nokkuð langt skeið og mun TM kosta útsendingar á RÚV frá leikjum íslenska liðsins á EM. TM hefur undanfarin ár verið í samstarfi við Margréti Láru Viðarsdóttur, íþróttamann ársins 2007, um að auka hróður íslenskrar kvennaknattspyrnu. Margrét Lára hefur verið áberandi í auglýsingum TM auk þess sem vefsíðan mlv.is var sett upp þar sem hægt er að finna myndbönd með Margréti Láru ásamt bloggi íþróttahetjunnar.

TM hefur í samstarfi við Ratsjá lagt mikið uppúr góðri eftirtekt á vef, í vor hleypti TM af stokkunum nýjum farsímavef, m.tm.is, sem var meðal annars auglýstur á farsímavef símaskrárinnar, mja.is. Þá hefur TM einnig látið til sín taka á Facebook, en í sumar stóð TM fyrir vinaleik á samfélagsvefnum með góðum árangri.
Í tengslum við EM kvenna er TM með skemmtilega vefauglýsingu á mbl.is þar sem tveir vefborðar vinna saman;  Margrét Lára sparkar bolta úr auglýsingaborða sínum, sem er hægra megin á fréttasíðu, yfir í sjampóauglýsingu sem er vinstra megin.
Skemmtileg vefauglýsing sem sjá má hér.

Written by Benedikt Rafn

ágúst 17, 2009 at 22:43

Skrifað í Birtingar, Vefur, auglýsingar

Kominn tími á gymmið?

without comments

Auglýsendur leita ýmissa leiða til þess að vekja athygli á sér og sinni vöru / þjónustu. Auglýsingastofan N=5 í Amsterdam fékk það verkefni að búa til auglýsingar fyrir keðju líkamsræktarstöðva í Hollandi, Fitness First. N=5 fékk fékk þessa hugmynd:

þyngd

Setan í strætóskýlinu er vikt sem tengd er við auglýsingaskiltið sem svo sýnir öllum í nágrenni skýlisins hversu mikið hlass aumingja manneskjan sem á setunni situr er. Þetta á auðvitað að vekja sektarkennd hjá sitjandanum yfir öllu nammiátinu og hreyfingarleysinu og fyrir vikið hleypur fórnarlambið rakleitt í næsta Fitness First og kaupir sér árskort.

Þessi aðferð hefur þó örugglega vakið athygli fleirri en bara þeirra sem setjast á viktina.

Written by Benedikt Rafn

júní 1, 2009 at 12:10

Skrifað í auglýsingar

Samfélagsmiðlar og kreppan

without comments

social media mixMörg fyrirtæki hafa neyðst til þess draga úr umsvifum sínum á auglýsingamarkaði hér á landi að undanförnu og þarf engan að undra það. Svipaða sögu er að segja af auglýsingamarkaði í Bandaríkjunum þar sem efnahagur landsins er í mestu lægð í áratugi eins og svo víða annars staðar. Kreppan bitnar þó ekki á öllum miðlum því rannsóknir sýna að 53% fyrirtækja ætla að auka hlut samfélagsvefja í markaðsáætlunum sínum og 42% ætla ekki að minnka auglýsingafé til þess sama.
Því ætla 95% bandarískra fyrirtækja að auka við auglýsingar á samfélagsvefjum  í yfirstandandi kreppu eða ráðstafa sömu upphæð. Ástæðurnar eru ýmsar, meðal annars þær að samfélagsvefir njóta mikilla vinsælda, auðvelt er að nálgast fyrirfram skilgreinda markhópa og auglýsingar á þessum vefjum eru yfirleit ódýrar. Því til staðfestingar má benda á að þrír af hverjum fjórum bandarískum auglýsendum eyddu lægri upphæð en $100.000 í auglýsingar á samfélagsvefjum á síðasta ári.

Sjá nánar hér.

Written by Benedikt Rafn

mars 23, 2009 at 10:03

Superbowl

without comments

Úrslitaleikur ameríska fótboltans, Superbowl, er í kvöld. Í venjulegu árferði frumsýna stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna nýjar auglýsingar og þykir mörgum ekki síður skemmtilegt að fylgjast með auglýsingahléum í Ofurskálinni en úrslitaleiknum sjálfum. Það er hins vegar fátt vejnulegt við það árferði sem bandarísk fyrirtæki búa við í dag (og þótt víðar væri leitað!) og hafa nokkrir stórir auglýsendur ákveðið að auglýsa ekki í Ofurskálinni þetta árið. Fed Ex og General Motors verða ekki með auglýsingu í útsendingunni í kvöld, en þessi fyrirtæki hafa undanfarin 10 ár verið einna frekust til auglýsingaplássins í Ofurskálinni.
Þá ákvað Miller bjórframleiðandinn að skera verulega niður. Í stað þess að borga 3 milljónir dala (344 milljónir króna) fyrir 30 sekúndna auglýsingu ákváðu stjórnendur Miller að spara með því að birta auglýsingu í Ofurskálinni sem er aðeins 1 sekúnda að lengd:

Miller setti einnig á vefinn fjölmargar örauglýsingar sem ekki náðu því að komast í sjónvarp:

Þó svo margir auglýsendur haldi þétt utan um veskin sín um þessar mundir þá hefur ekki gengið illa að selja í auglýsingahólfin á Superbowl. Það virðist ekki há auglýsingasölunni verulega að sekúnduverðið hefur aldrei verið hærra, eða 3 milljónir dala fyrir 30 sekúndur eins og áður sagði – um miðjan janúar var búið að fylla í yfir 90% af auglýsingatíma úrslitaleiksins.

Auglýsingar í Superbowl 2009 má sjá hér.

Written by Benedikt Rafn

febrúar 2, 2009 at 01:26

Skrifað í auglýsingar

Meira af listum

without comments

Bandaríkjamenn mæla allar markaðshreyfingar í bak og fyrir og eru fyrir vikið með á hreinu hvaða auglýsingar skila auglýsandanum arði og hverjar ekki, hvað hver auglýsandi eyðir miklum fjármunum í auglýsingar, hvaða auglýsingar falla best í kramið hjá áhorfendum o.s.frv.
Hollensk / bandaríska markaðsgreiningarfyrirtækið Nielsen gaf nýlega út tölur um ýmislegt er viðkemur markaðsmálum í Bandaríkjunum. Þar kemur í ljós að Proctor & Gamble og dótturfyrirtæki eyddu nálægt 2,4 milljörðum bandaríkjadala í auglýsingar á 10 fyrstu mánuðum ársins, sem gerir nálægt 300 milljarða ISK á gengi dagsins í dag – reiknað er með að tekjur ríkissjóðs á næsta ári verði um 400 milljarðar ISK. Af vörumerkjum P&G má nefna Ariel, Duracell, Gillette, Pampers, Wella, Pringles og Always. Bílaframleiðandinn General Motors eyddi næst mest í auglýsingar eða rúma $1,4 milljarða og fjarskiptafyrirtækið AT&T er í þriðja sæti með $1,3 milljarða.

Þá hefur Nielsen einnig komist að því hvaða auglýsingar það voru sem bandarískum sjónvarpsáhorfendum líkaði best við á árinu 2008. Auglýsing bandarísku NFL deildarinnar er þar í efsta sæti skv. mælingum Nielsen en í henni lýsir ruðningskappinn Ephraim Salaam hvernig Chester Pitts, áður pokadýr í stórmarkaði, varð leikmaður í NFL deildinni:

Budweiser hefur gert margar vinsælar auglýsingar í gegnum tíðina og í tengslum við úrslitaleik NFL deildarinnar ár hvert, Superbowl, frumsýnir bjórframleiðandinn nýja auglýsingu og yfirleitt fleiri en eina. Ein af auglýsingum Budweiser hitti í mark hjá bandarískum sjónvarpsáhorfendum þetta árið en samkvæmt mælingum Nielsen er þetta önnur vinsælasta sjónvarpsauglýsingin árið 2008 í USA:

Það er fátt sem er Nielsen óviðkomandi þegar kemur að greiningu á auglýsinga- og markaðsmálum, til að mynda hefur fyrirtækið fundið það út að sjónvarpsþátturinn The Biggest Looser er eitt stórt auglýsingapláss að því leyti að frá janúar og fram í lok nóvember brá innsettum vörum og vörumerkjum (product placement) 6.248 sinnum fyrir í þáttum ársins. Það er nokkuð vel af sér vikið því sá þáttur sem hýsti næst flestar innsetningar á vörum og vörumerkjum á árinu sem er að líða, American Idol, sýndi sitt spons “aðeins” 4.363 sinnum.

Annars er tölfræðinördum um fjölmiðlun bent á þessa skýrslu frá Nielsen.

Written by Benedikt Rafn

desember 20, 2008 at 00:52

Skrifað í auglýsingar

Sjónvarpsauglýsingar ársins

without comments

Í lok hvers árs er vinsælt að taka saman lista yfir hitt og þetta ársins sem er að líða. Á hverju ári birtir bandaríska tímarið Time top 10 lista yfir allt á milli himins og jarðar, þar á meðal lista yfir 10 bestu sjónvarpsauglýsingar ársins að mati blaðsins. Besta auglýsingin sem birtist í bandarísku sjónvarpi árið 2008 að mati Time er auglýsing frá fjarskiptafyrirtækinuj T-mobile þar sem NBA körfuboltastjörnurnar Charles Barkley og Dwyane Wade eru í aðalhlutverkum:

Veftímaritið Adfreak.com hefur líka tekið saman lista yfir 32 fríkuðustu auglýsingar ársins, ef svo má segja, og býður lesendum sínum að kjósa á milli hver þeirra sé sú fríkaðasta. Er um að ræða prent, sjónvarpsauglýsingar og viral efni. Til að mynda er tilnefnd heimasíða þar sem gaur sem kallar sig Ross sýnir hvernig á að kyssa rétt. Auglýsandinn er Converse. Þá er hér ein ansi fríkuð og skemmtileg auglýsing þar sem verið er að auglýsa hinn heimsfræga söngleik, EVIL DEAD, THE MUSICAL:

Og talandi um viral efni, þá tekur Time auðvitað líka til 10 bestu viral myndböndin á árinu sem fer senn að ljúka. Eitt það kostulegasta er það sem blaðið velur í 6. sæti en það er skopstæling á Mario Bros tölvuleiknum. Sá sem á sök á djókinu er Seth MacFarlane sá sem skóp framhaldsþáttinn Family Guy og allt er þetta í boði Burger King:

Hægt er að sjá fleiri video á þúskjárkanal Burger King.


Written by Benedikt Rafn

desember 18, 2008 at 20:27

Skrifað í 1

Markaðssetning forseta

without comments

obama08Kosningabarátta Baracks Obama á leið hans í bandaríska forsetastólinn verður síðar notuð sem dæmi um fullkomna markaðsherferð. Þetta er mat flestra markaðssérfræðinga sem fylgdust vel með kosningaherferð Obama undanfarin nærri tvö ár, þeirra á meðal John Quelch hjá Harvard Business Review.

Barack Obama og fylgdarlið hans rak það góða “viral” markaðs- / kosningaherferð að annað eins hefur ekki áður sést. Obama notaði vefinn út í ystu æsar, var með vandaðar síður og heimasvæði á öllum fyrirferðamestu samfélagsvefjunum sem fyrirfinnast á netinu, hvort sem það var You Tube, Facebook, Twitter, Myspace, LinkedIn eða samfélagsvefir sem við könnumst lítið við hér á landi; Eons, Glee, Faithbase, MyBatanga og BlackPlanet svo einhverjir séu nefndir. Aðalsíða herferðarinnar var þó BarackObama.com þar sem hann hélt úti öflugu bloggi og þar var einnig að finna tengla á allar opinberar stuðningssíður Obama á vefnum.

obama-everywhere

Obama allstaðar (tekið af barackobama.com)

Með þessari aðferð náði Barack Obama að stækka kjósendahóp sinn til mikilla muna og ná til yngra fólks en hann hefði ella gert.

Obama notaði vefinn einnig til þess að ná í fjárframlög með góðum árangri. Á öllum vefsvæðum sem sett voru upp í hans nafni gafst fólki kostur á að styðja kosningaherferð hans með fjárframlögum. Auk þess settu tugir þúsunda stuðningsmanna Obama upp eigin vefsvæði þar sem þeir tóku á móti fjárframlögum í kosningasjóð Obama.

Allt hjálpaði þetta til við að kosningasjóður Obama varð rúmar 600 milljónir bandaríkjadala, sem er nærri því tvöföld sú upphæð sem John Kerry og George W. Bush höfðu úr að spila í kosningabaráttunni árið 2004.

Hér má sjá grein Quelch á vef Harvard Business Review.

Written by Benedikt Rafn

nóvember 10, 2008 at 20:08

Ísland á EM og Facebook!

without comments

Laugardalur i dag

Laugardalur í dag

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur einn stærsta leik íslenskrar knattaspyrnusögu í kvöld þegar liðið tekur á móti Írum á Laugardalsvelli. Takist íslensku stelpunum að fara með sigur af hólmi kemst liðið í úrslit Evrópukeppninnar sem fram fer í Finnlandi á næsta ári.
Aldrei fyrr hefur íslenskt knattspyrnulandslið verið eins nálægt því að tryggja sér sæti í úrslitakeppni stórmóts.  Stelpurnar hafa óskað eftir stuðningi þjóðarinnar og mun hver rödd skipta þar máli.

Miðasala fer einnig fram á netinu, á www.midi.is. Leikurinn hefst kl. 18:10 en miðasala hefst á Laugardalsvelli kl. 12:00.

Laugardagsvöllurinn daginn fyrir leik

Ratsjá hefur komið upp stuðningsmannasíðu fyrir liðið á Facebook. Á skömmum tíma fyrir leikina gegn Slóveníu og Grikklandi síðastliðið vor tókst að ná töluvert stórum hópi á aðdáendasíðu kvennalandsliðsins miðað við það sem gengur og gerist með íslenskar aðdáendasíður á Facebook. Síðan hafa nokkur hundruð manns bæst í hópinn, aðdáendur liðsins hafa verið duglegir við að skiptast á skoðunum um málefni liðsins og hafa sumir sent inn fjölda ljósmynda sem tengjast landsliðinu.

Aðdáendasíða liðsins hefur því reynst vel sem hluti af kynningarefni íslenska kvennalandsliðsins auk þess sem hún er prýðilegur vettvangur fyrir stuðningsmenn þess að skiptast á skoðunum. Hún er einnig ágætt markaðstól þar sem auðvelt er að koma á framfæri upplýsingum um íslenska liðið.

———

Erlend stórfyrirtæki hafa tileinkað sér Facebook og þá möguleika sem vefsvæðið býður uppá í markaðssetningu. Þannig hafa vörur eins og iPhone og Nutella mörg hundruð þúsund aðdáendur á Facebook. Íslenskar vörur eiga einnig sínar aðdáendasíður á netinu, þó aðdáendurnir séu aðeins færri, sem dæmi má nefna Malt, Maxí popp og Opal.

Written by Benedikt Rafn

október 30, 2008 at 11:53

Skrifað í Ratsjá, Vefur

Tagged with ,

Sjónvarpsauglýsingar framtíðarinnar

without comments

Hefðbundar sjónvarpsauglýsingar hafa um nokkurt skeið átt undir högg að sækja bæði austan hafs og vestan. Stafræn sjónvarpsupptökutæki, t.a.m. TiVo í Bandaríkjunum og Sky box í Bretlandi gera sjónvarpsáhorfandanum kleift að annað hvort hraðspóla yfir auglýsingahólf eða hreinlega sleppa þeim. Þetta er vissulega bagalegt fyrir auglýsandann en talið er að um 11% auglýsinga í USA missi marks þar sem áhorfandinn sneiðir fram hjá þeim með hjálp upptökutækjanna. Þarna eru gríðarlegir fjármunir í húfi fyrir auglýsendur.
Þeir hafa því leitað annarra leiða til að koma vöru sinni og / eða þjónustu fyrir augu sjónvarpsáhorfenda. Staðsetning vöru inní þáttum og kvikmyndum í samráði við framleiðendur er þekkt leið (product placement / product integration), þá hafa bandarískar sjónvarpsstöðvar auglýst dagskrárefni sitt á auglýsingaborðum sem birtast á skjánum ofan í annað sjónvarpsenfni auk þess sem nú eru farin að birtast vörumerki og skilaboð frá auglýsendum inní þáttum rétt áður en kemur að auglýsingahléi. En nú má segja að þessi þróun sé að komast á nýtt stig.

Breska sjónvarpsstöðin ITV tilkynnti nýverið að hún muni áður en langt um líður hefja birtingu sjónvarpsauglýsinga inní þáttum með hjálp tölvutækni. Stöðin og tæknimenn á hennar vegum hafa þróað flókinn algorithma sem gerir auglýsendum kleyft að auglýsa á hlutlausum myndflötum inní miðjum sjónvarpsþáttum, s.s. á auðum veggfleti eða heiðum himni. Kallast þessi tækni “automatically placed overlay advertising” og eru þegar hafnar tilraunir með þessar tegundir auglýsinga í vefsjónvarpi ITV.

Eins og staðan er í Bretlandi í dag þá eru óbeinar auglýsingar óleyfilegar og sömu sögu er að segja af vörustaðsetningu, eða “product placement”. Það verður fróðlegt að sjá hvernig löggjafinn tekur á þessari tækni í Bretlandi, en gera má ráð fyrir að það verði auðveldara að auglýsa með þessum hætti vestan hafs.

Handan við hornið eru því auglýsingar sem áhorfandinn kemst ekki hjá því að sjá þegar hann horfir á uppáhalds sjónvarpsþáttinn sinn. Það á svo eftir að koma í ljós hvernig áhorfandinn bregst við þess háttar auglýsingaáreiti.

Written by Benedikt Rafn

október 16, 2008 at 15:00

Facebook og auglýsingar

without comments

Það er ekki langt síðan íslenskum auglýsendum gafst fyrst tækifæri til þess að kynna sínar vörur og þjónustu á samfélagsvefnum Facebook. Snemma í vor sáust fyrstu íslensku auglýsingarnar og síðan þá hafa íslenskir auglýsendur tekið vel við sér enda nýtur Facebook gríðarlegra vinsælda hér á landi. Í dag eru tæplega 60.000 manns skráðir sem íslenskir notendur á Facebook.

Auglýsingapláss á Facebook eru ekki stór heldur aðeins lítil mynd og stuttur texti með slóð á það sem á að auglýsa eins og Facebook notendur þekkja. Virkni auglýsinganna er mæld m.a. með hlutfalli birtinga gagnvart smellum á auglýsingu, á ensku “Click through ratio” – hér eftir CTR. Erlendis hafa auglýsendur orðið fyrir vonbrigðum með CTR á Facebook sem er að meðaltali einungis 0,04%. Þessi tala er fjarri því sem við hjá Ratsjá höfum séð þegar virkni auglýsinga okkar viðskiptavina á Facebook eru mældar en auglýsingar viðskiptavina okkar hafa mælst með frá 0,1% CTR og upp í 0,6% CTR.

Reynslan hefur sýnt okkur að auglýsingaborðar á þremur stærstu vefmiðlum landsins, mbl.is, visir.is og ja.is ná rétt einum tíunda CTR af því sem auglýsingar á Facebook ná, en á stóru miðlunum er CTR yfirleitt á bilinu 0,01% til 0,03%.

Það er eflaust margt sem veldur því að auglýsingar á Facebook ná hærra CTR hlutfalli hér en annars staðar, auk þess að ná hærra hlutfalli en á stóru miðlunum. Íslendingar eru að uppgötva miðilinn og því getur nýjungagirni átt þátt í háu CTR hlutfalli. Þá er textinn knappur sem auglýsendur mega koma fyrir og því grípa sumir þeirra til þess að búa til einhvers konar “teaser” til þess að vekja forvitni þeirra sem sjá auglýsinguna. Þá hefur það einnig mikil áhrif á hátt CTR hlutfall að þeir sem auglýsa á Facebook geta beint auglýsingu sinni markvisst að markhópi sínum. Þannig getur auglýsandinn fyrirfram skilgreint kyn og aldur þeirra sem munu sjá auglýsinguna.

Ef til vill mun CTR hlutfallið lækka eftir því sem auglýsingar á Facebook verða hversdagslegri hér á landi, en þangað til er Facebook mjög vænlegur kostur fyrir auglýsendur.

Written by Benedikt Rafn

september 17, 2008 at 17:24

Skrifað í Fjölmiðlar, Vefur

Tagged with , ,