Author Archive
Haustherferðir
Nú eru allir komnir aftur til starfa eftir sumarfrí og frekar rólegan júlímánuð. Við erum búin að vera að keyra mjög góða herferð fyrir EJS sem virðist ætla að skila frábærum árangri: www.ejs.is/skolavefur .
Brjálaðir banner tónleikar!
Ein af okkar uppáhalds herferðum síðasta árs var gerð af Boondoggle fyrir Axio bankann í Belgíu. Herferðin vann til verðlauna í öllum flokkum á Cannes Lions (5 ljón).
Hér er case-ið:
Eins og góðri stofu sæmir þá bjuggu Boondoogle til myndband eftir að komið var heim með verðlaunin, mjög sniðugt:
Boondoggle er áhugaverð stofa sem leggur mikinn metnað í creative digital hugsun sem skilaði sér í þessu frábæra verkefni. Við sem birtingafyrirtæki finnum mikla samsvörun við þetta verkefni enda eru mörk birtinga, auglýsingagerðar og veffhönnunar sífelt að verða ósskýrari.
Twitter á Íslandi
Rupal Parekh ( @rupalparekh ) hjá AdvertisingAge birti áhugaverða grein á bloggi AdAge fyrir stuttu. Þar tekur hún fyrir fyrirtæki sem eru ráðgjafar í rafrænni markaðssetningu en standa sig illa sjálf í sinni rafrænu markaðssetningu. Greinin dregur full dökka mynd af bransanum en það eru nokkur mjög góð tíst frá auglýsinga- og ráðgjafastofum og mjög mikið af frábærum tístum frá starfsfólki stofanna. Ratsjá (@ratsja) er búin að tísta í að verða ár og tveir starfsmenn stofunnar enn lengur @bardur og @benediktrafn. Ratsjár tístinu er haldið uppi af @bardur og @benediktrafn og á að vera á faglegum nótum og að mestu um markaðsmál og birtingar þó svo að auðvitað sé það oft mun persónulegra en bloggið. Markaðssvæði Ratsjár er nær eingöngu Ísland og því er tístið á íslensku. Okkar persónulegu tíst eru svo mun fjölbreyttari og persónulegri og að miklu leiti á ensku, við bökkum svo upp Ratsjár tístið með okkar tístum.
Ratsjá hefur notað Twitter með góðum árangri í markaðsstarfi og má þar líklega fyrst nefna @hannerkominn sem var teaser fyrir Polar Beer og líklega fyrsta markaðsaðgerðin á Íslandi sem nýtti Twitter. Því miður sér Ratsjá ekki lengur um það vörumerki og virðist öll rafræn markaðssetning horfin eftir það. Ratsjá var einnig í ráðgjafavinnu fyrir Framsókn í kosningunum og er Framsókn enn þann dag í dag lang virkasta pólitíska aflið á Twitter ( @framsokn ). Eymundsson hefur einnig komið sér upp nokkuð virkum twitter account með ágætis árangri (@eymundsson). Það eru klárlega mikil tækifæri fyrir smásala að nýta sér twitter bæði til að byggja upp persónulegt brand en einnig til að nýta ser mjög hraðvirkan og ódýran sölukanal, eitt besta dæmið um þessháttar vinnu er líklega @delloutlet sem hefur skilað Dell gríðarlega jákvæðri niðurstöðu.
Við hjá Ratsjá fylgjumst með ansi mörgum erlendum tístum sem tengjast auglýsingastofum, birtingahúsum og markaðsráðgjöfum má þar nefna t.d. @ogilvy , @razorfish, @agencypaj , @McCann_NY og @BBHLabs. Til viðbótar fylgjumst við mjög mörgum persónulegum tístum um sama málefni.
Á Íslandi er að finna fjölmörg dæmi um léleg tíst en hér er þó einnig að finna mikinn fjölda frábærra tístara. Twitter senan á Íslandi er enn svolítið tækni-nördaleg, mikið af fólki sem vinnur í upplýsingatækni. Nokkur góð dæmi og vert að fylgja eru: @hjalli , @gommit, @rosastef, @andresjons, @frostis , @jonsval , @allimetall og @netgaur . Nokkur fyrirtæki og félagasamtök eru einnig með áhugaverð tíst t.d. @raduneytid , @graenland, @takktakk, @gogoyogo , @gogogic , @datamarket , @icelandexpress og @icelandair (Ath. ágætis lista á síðu Andrésar Jóns almannatengils ). Innsk 8.jul @icelanders eru að kanna hve stór twitterhópurinn er á Íslandi og skv. kynningu á #RVKTweetup er hópurinn nú rúmlega 1.500 þó svo að aðeins um 500 séu virkir (Sjá kynningu á QIK).
Læt hér fylgja með samantekt Rupal Parekh á mikilvægustu punktum þegar fyrirtæki ákveða að byrja að tísta, hvort sem við erum sammála þeim eða ekki:
| Thinking of Tweeting? There’s no silver bullet when it comes to Twitter, but here is some common-sense logic agencies should apply to their strategies. |
| Don’t over-promote. Of course you want to use Twitter to build your agency’s brand, but don’t hit people over the head with a litany of press releases.
Be human. Attach a personality — a name, a photo — to your Twitter feed and balance promoting your brand with some personal updates so followers can get a sense of your company culture. Remember, Twitter is public! A client probably won’t appreciate your tweeting “Ouch, got a nasty hangover” when you’re late to the meeting. Keep clients looped. Be sure to share your agency’s Twitter strategy with your clients. Get permission if you want to mention one by name, and don’t forget that a lot of your work is proprietary. Don’t let a careless misstep to cost you the relationship. Listen. Know what people are saying about you on Twitter. Use search.twitter.com or an application such as TweetDeck to monitor the chatter. Respond. The point of being on Twitter is to engage with people who know your agency, as well as those who don’t and want to learn more about you. If followers comment on your feed or send you direct messages, get back to them promptly. Remember, it’s a conversation. Keep expectations in check. A Twitter strategy does not make your agency “social.” Try out tools internally to share knowledge, exchange ideas and — best yet — encourage learning that you can pass along to clients. Identify impersonators. Accounts purporting to be someone or something they’re not violate Twitter’s terms of service. So if someone’s got their paws on yours, let Twitter know. – Rupal Parekh |
Twitter á TED
Evan Williams CEO hjá IDEO með skemmtilegan fyrirlestur um Twitter. Við hjá Ratsjá erum mjög hrifin af Twitter en líka af góðum glærum, þetta sameinar það tvennt!
Ratsjá
Ratsjá auglýsir nú á forsíðu já.is. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að bjóða þjónustu fyrirtækisins til einstaklinga og fyrirtækja sem ekki hafa áður nýtt sér þjónustu birtingafyrirtækis en einnig sá að kynnast nýjum vef af eigin raun. Ratsjá sérhæfir sig í ráðgjöf við gerð og birtingu auglýsinga. Til þess notar fyrirtækið hefðbundnar nálganir birtingarhúsa og styðst m.a. við gögn úr rafrænum mælingum Capacent á ljósvakamiðlum. Ratsjá leggjur mikla áherslu á þáttöku ráðgjafa í ákvörðunarferlinu frá fyrstu skrefum til loka verkefna auk þess sem við lítum á nýsköpun í þjónustu sem skyldu. Undanfarið ár hefur Ratsjá lagt mikinn metnað í vefbirtingar og árangursmælingar tengdum þeim. Fyrirtæki virðast vera að færa stærri hluta af sínu markaðsfé á vef auk þess sem nýir miðlar eru í boði. Seinasta ár var klárlega ár samfélagsvefja með Facebook í fararbroddi, Ratsjá hefur náð mjög góðum mælanlegum árangri á þessum vefjum í bland við hefðbundna vefmiðla. Að lokum er það yfirsýn og þekking á miðlum og markhópum sem gerir útslagið, það ásamt nánu og miklu sambandi við viðskiptavini og auglýsingastofu er lykillinn að góðum árangri. Hjá Ratsjá er enginn kúnni of stór eða lítill, áskorunin liggur í verkunum og árangrinum en ekki stærðinni. Fyrirtækið hefur á undanförnu ári unnið allt frá umfangsmiklum auglýsingaherferðum þvert á alla miðla niður í lítil sérhæfð verkefni á Facebook fyrir einyrkja eða félagasamtök. Við bjóðum því alla áhugasama velkomna, endilega sendið okkur fyrirspurn á ratsja@ratsja.is eða hafið samband í síma 512-4500. Við minnum á að Ratsjá er að finna á Facebook , LinkedIn , Twitter og á sérstakri mobile-síðu.
Mobile Advertising
Ratsjá hefur frá stofnun kannað markaðinn fyrir mobile auglýsingar. Framboðið hefur verið lítið ef frá eru talin textaskilaboð sem símafyrirtækin bjóða uppá en landslagið er smám saman að breytast. Áhugaverðir vefir Nova og nú nýlega M-ið hjá símanum hafa bætt við auglýsingamöguleikum auk þess sem Mbl hefur átt góða innkomu. Þrátt fyrir gríðarlega farsímaeign Íslendinga og fjölda tækja með góðum skjá og hröðum tengingum virðist vefnotkun Íslendinga í gegnum farsíma ekki haldast í hendur við vefnotkun víða annars staðar. Margt hefur auðvitað áhrif á þetta s.s. verð á þjónustu, almenn tölvueign, stuttur ferðatími o.s.frv. Þetta mynstur virðist vera að breytast, farsímanetnotkun er að aukast og því sjáum við tækifæri í auglýsingum á þessum miðli, bæði vegna formsins en einnig vegna þess að við náum til viðskiptavina þegar þeir eru á ferðinni, ekki endilega á skrifstofunni eða heima.
Nokkur vandamál koma þó upp við svona markaðssetningu eins og t.d. nákvæm árangursmæling því hefðbundin vefgreiningartól virka illa eða ekki í þessum miðli. Við stukkum því til um leið og við fréttum af nýjum mobile vef já.is ( http://m.ja.is ), settum þar inn litla auglýsingu og settum samhliða því upp litla mobile síðu fyrir Ratsjá ( http://m.ratsja.is ) sem í raun og veru er einungis tweet feed frá starfsfólki Ratsjár. Tilgangurinn er fyrst og fremst að prófa ný vefgreiningartæki, kynnast miðlinum betur og þeim hópi sem er virkur notandi. Fyrstu skrefin lofa góðu og við erum að átta okkur betur á mælitækjunum.
Bestu viðskiptabækur ársins 2008
Við erum búin að liggja mikið yfir topplistum síðasta árs. Bækur standa okkur nærri og við reynum að lesa eins mikið og við mögulega getum.
Það kom mikið af frábærum bókum út á síðasta ári. Ég kaupi mest af mínum bókum í gegnum Amazon.co.uk eða Audible en oft notfæri ég mér frábæra síðu 800 CEO Read til að velja mér næsta titil. 800 CEO Read tók saman lista yfir bestu viðskiptabækurnar sem hafa verið gefnar út á árinu. Þeir gerðu auðvitað sinn eigin lista en gerðu svo annan þar sem þeir suðu saman marga lista við sinn eiginn(1, 2, 3, 4, 5, 6).
Til viðbótar tók ég saman topp 10 lista Amazon.com og .co.uk og svo einhverskonar óskalista frá mér. Commentin í sviganum eru frá mér en hlekkir vísa á viðkomandi síður.
Samanlagður topp 10 listi hjá 8CR:
- The Game Changer eftir A. G. Lafley and Ram Charan
- A Sense of Urgency eftir John Kotter
- The Back of the Napkin eftir Dan Roam
- The Adventures of Johnny Bunko eftir Dan Pink, líklega fyrsta viðskiptabókin sem er teiknuð í manga stíl.(Hér er Skemmtilegur trailer um bókina).
- Tribes eftir Seth Godin (Mæli með þessari, skemmtileg og góð lesning)
- The Age of Heretics eftir Art Kleiner
- Buying In eftir Rob Walker.
- Crowdsourcing eftir Jeff Howie
- The Snowball um Warren Buffett
Hjá 8CR er auðvitað ekkert talað um Amazon en hjá Amazon.co.uk er listinn svolítið frábrugðinn þó svo að vissulega séu sömu bækurnar líka á listanum:
- The Snowball: Warren Buffett and the Business of Life skrifuð af Alice Schroeder (Maður þarf greinilega að lesa þessa, er hreinlega á öllum listum ársins).
- The Black Swan: The Impact of the Highly Improbable eftir Nassim Nicholas Taleb
- When Markets Collide: Investment Strategies for the Age of Global Economic Change eftir Mohamed El-Erian (Mjög umdeild bók þar sem höfundurinn spáir því efnahagshruni sem varð svo raunin)
- The New Paradigm for Financial Markets: The Credit Crisis of 2008 and What It Means eftir George Soros
- Business Stripped Bare: Adventures of a Global Entrepreneur eftir Sir Richard Branson (Alltaf gaman að lesa Branson, kemur með gott og skemmtilegt sjónarhorn á viðskipti)
- The Bottom Billion: Why the Poorest Countries are Failing and What Can be Done About it eftir Paul Collier (Mjög umtöluð bók, spennandi fyrir alla sem hafa áhuga á hagkerfi heimsins og þróunarhagfræði)
- Presentation Zen: Simple Ideas on Presentation Design and Delivery (Voices That Matter) eftir Garr Reynolds (frábær náungi og frábær bók, þessi bók á klárlega heima hjá öllum sem einhverntíman þurfa að koma fram)
- The Secrets of Success at Work: 10 Steps to Accelerating Your Career eftir Richard Hall
- A Sense of Urgency eftir John P Kotter (Prófessor við Harvard sem skrifaði Leading Change og Our Iceberg is Melting, þessi bók er alveg frábær)
Ameríska Amazon er nær mínum lista en breska Amazon
- The Snowball: Warren Buffett and the Business of Life eftir Alice Schroeder
- A Sense of Urgency eftir John P. Kotter
- The Brand Bubble: The Looming Crisis in Brand Value and How to Avoid It eftir John Gerzema (Besta branding bók ársins að mati margra).
- The Momentum Effect: How to Ignite Exceptional Growth eftir J.C. Larreche (Bók um markaðskostnað og markaðsbudget frá Warton).
- The Back of the Napkin: Solving Problems and Selling Ideas with Pictures eftir Dan Roam (Klárlega ein af skemmtilegri bókum ársins)
- The Gone Fishin’ Portfolio: Get Wise, Get Wealthy…and Get on With Your Life (Agora Series) eftir Alexander Green
- The Illusions of Entrepreneurship: The Costly Myths That Entrepreneurs, Investors, and Policy Makers Live By eftir Scott A. Shane (Bók fyrir alla frumkvöðla og þá sem koma að frumkvöðla- og nýsköpunarfræðum)
- Groundswell: Winning in a World Transformed by Social Technologies eftir Charlene Li (Ég er mjög hrifinn af Charlene Li, mjög áhugaverð bók en svolítil nördalykt af henni)
- The Contrarian Effect: Why It Pays (Big) to Take Typical Sales Advice and Do the Opposite eftir Michael Port (Áhugaverð bók fyrir fólk sem kemur að sölu)
- Reality Check: The Irreverent Guide to Outsmarting, Outmanaging, and Outmarketing Your Competition eftir Guy Kawasaki (Frábær bloggari og skemmtilegur náungi, skemmtilesning)
Minn óskalisti er svo eftirfarandi, raðað í stafrófsröð:

The Back of the Napkin: Solving Problems and Selling Ideas with Pictures eftir Dan Roam

The Bottom Billion: Why the Poorest Countries are Failing and What Can be Done About it eftir Paul Collier

The Brand Bubble: The Looming Crisis in Brand Value and How to Avoid It eftir John Gerzema

Groundswell: Winning in a World Transformed by Social Technologies eftir Charlene Li

The Illusions of Entrepreneurship: The Costly Myths That Entrepreneurs, Investors, and Policy Makers Live By eftir Scott A. Shane

The Momentum Effect: How to Ignite Exceptional Growth eftir J.C. Larreche
Outliers: The Story of Success eftir Malcolm Gladwell

Presentation Zen: Simple Ideas on Presentation Design and Delivery (Voices That Matter) eftir Garr Reynolds

A Sense of Urgency eftir John P Kotter
The Snowball: Warren Buffett and the Business of Life skrifuð af Alice Schroeder.
Tribes eftir Seth Godin

Reality Check: The Irreverent Guide to Outsmarting, Outmanaging, and Outmarketing Your Competition eftir Guy Kawasaki
Því miður er nær ekkert til af þessum bókum á bókasöfnum landsins en eitthvað af þessum bókum fást í Skuld, frábærri bókabúð á Laugavegi.
Nýkjörinn forseti Bandaríkjanna – Barack Obama
…meira síðar!
Óhefbundnar auglýsingastaðsetningar
Nýlegar rannsóknir benda til þess að auglýsingar á matarborðum flugsæta séu góð fjárfesting. 79% af flugfarþegum í amerísku innanlandsflugi muna eftir auglýsingunum og um 26% hafa jákvæða svörun jafnvel kaup á vöru eða þjónustu sem auglýst var. Bifreiðar og þjónusta komu best út úr þessum könnunum en bifreiðaagulýsingar ná 83% eftirtekt og þjónusta fær um 86% jákvæða svörun. Sjónvarpsauglýsingar um borð í vélunum virðast hins vegar skila verri árangri en 12,2% muna eftir auglýsingum í sjónvarpinu og um 8% sýna jákvæða svörun.
Flugfarþegar eru áhugaverður markhópur. Farþegar í innanlandsflugi eru þverskurður af þjóðinni þó svo að ætla megi að þar sé stórt hlutfall opinberra starfsmanna og viðskiptamanna, sérstaklega á stærri áfangastaði. Hópurinn hlýtur að vera áhugaverður fyrir margar sakir. Flugfarþegar innanlands nýta ferðina oftar en ekki til að versla auk þess sem þeir nýta sér margskonar aðra þjónustu á áfangastað s.s. bílaleigubíla, veitingastaði, hótel, osfrv. Fólk úr viðskiptalífinu og starfsmenn opinberra stofnanna er yfirleitt vel menntað og með góðar tekjur og ætti því að vera vænlegur kostur fyrir auglýsendur.
Til þess að þessi auglýsingakostur verði að áhugaverðum kosti verður verðið hinsvegar að endurspegla fjölda farþega og hins vegar eftirtektar- og kauphneigðartölur.
Heimild: Rannsóknarsamantekt unnin af Triad Communications og birt í MediaPost.
Ný skrifstofa við þjóðarleikvanginn!
Ratsjá er komið í nýja skrifstofu á Suðurlandsbraut 12, 7.hæð. Útsýnið er all svakalegt yfir þjóðarleikvanginn og sundin blá.
Benedikt er áfram staðsettur á Vesturgötu 10 en Auðbjörg hér á Suðurlandsbrautinni.
Síminn er enn sá sami 512-4500.



