Um Ratsjá
Ratsjá veitir viðskiptavinum sínum ráðgjöf um markaðsmál, auglýsingabirtingar og markaðsrannsóknir. Ratsjá leggur sérstaka áherslu á nána samvinnu með viðskiptavinum og auglýsingastofum frá upphafi verkefna og fylgir starfsfólk Ratsjár því verkefnum frá upphafi til enda. Ratsjá hefur samvinnu, frumkvæði og árangur að leiðarljósi
Samvinna
Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar og auglýsingastofu frá upphafi herferða. Þannig leggjum við okkar þekkingu fram á fyrstu metrunum í stað þess að koma til sögunnar á seinni stigum eins og of oft vill verða við skipulagningu auglýsingaherferða. Þessi nána samvinna skilar sér í betur skilgreindum verkefnum og upplýstum ákvörðunum sem auka hagkvæmni og árangur verkefnanna.
Frumkvæði
Við setjum okkur þau markmið að koma með nýjungar og óhefðbundnar lausnir, við teljum að miðlun auglýsinga og skilaboða sé ekki síður háð frumkvæði og góðum hugmyndum en önnur markaðs- og auglýsingavinna. Við erum því alltaf með augun opin til að sjá hlutina í nýju ljósi eða með öðrum gleraugum. Árangur má oft þakka aðgreiningu á markaði hvernig sem sú aðgreining birtist.
Árangur
Okkur er umhugað um árangur viðskiptavina okkar, þess vegna setjum við okkur markmið og fylgjumst náið með árangri herferða. Í samvinnu við okkar viðskiptavini verða því til árangursríkar markaðsherferðir.
Starfsmenn
Hjá Ratsjá starfa nú 3 starfsmenn:
Agnes Hlíf Andrésdóttir, viðskiptafræðingur, agnes (hjá) ratsja.is
Bárður Örn Gunnarsson, viðskiptafræðingur, bardur (hjá) ratsja.is
Benedikt Rafn Rafnsson, viðskiptafræðingur, benedikt (hjá) ratsja.is
Sagan
Ratsjá var stofnuð snemma árs 2008, byggt er á yfir 20 ára reynslu birtingardeildar Góðs fólks sem stofnuð var seint á níunda áratug síðustu aldar. Í dag starfar Ratsjá með auglýsingstofunni Jónsson & Le’macks auk annara minni auglýsinga-, markaðs- og almannatengslafyrirtækjum.