Ratsjá

Ratsjá er fyrirtæki á sviði auglýsinga- og markaðsráðgjafar

Archive for ágúst 2009

TM, vefur og kvennaknattspyrna

with one comment

tryggurÍslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur verið á mikilli siglingu undanfarin tvö ár og má segja að hápunkti verði náð í lok mánaðarins þegar liðið tekur þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins í Finnlandi. TM hefur staðið að baki íslenskri kvennaknattspyrnu um nokkuð langt skeið og mun TM kosta útsendingar á RÚV frá leikjum íslenska liðsins á EM. TM hefur undanfarin ár verið í samstarfi við Margréti Láru Viðarsdóttur, íþróttamann ársins 2007, um að auka hróður íslenskrar kvennaknattspyrnu. Margrét Lára hefur verið áberandi í auglýsingum TM auk þess sem vefsíðan mlv.is var sett upp þar sem hægt er að finna myndbönd með Margréti Láru ásamt bloggi íþróttahetjunnar.

TM hefur í samstarfi við Ratsjá lagt mikið uppúr góðri eftirtekt á vef, í vor hleypti TM af stokkunum nýjum farsímavef, m.tm.is, sem var meðal annars auglýstur á farsímavef símaskrárinnar, mja.is. Þá hefur TM einnig látið til sín taka á Facebook, en í sumar stóð TM fyrir vinaleik á samfélagsvefnum með góðum árangri.
Í tengslum við EM kvenna er TM með skemmtilega vefauglýsingu á mbl.is þar sem tveir vefborðar vinna saman;  Margrét Lára sparkar bolta úr auglýsingaborða sínum, sem er hægra megin á fréttasíðu, yfir í sjampóauglýsingu sem er vinstra megin.
Skemmtileg vefauglýsing sem sjá má hér.

Written by Benedikt Rafn

ágúst 17, 2009 at 22:43

Skrifað í Birtingar, Vefur, auglýsingar

Haustherferðir

with 2 comments

skólavefur EJSNú eru allir komnir aftur til starfa eftir sumarfrí og frekar rólegan júlímánuð. Við erum búin að vera að keyra mjög góða herferð fyrir EJS sem virðist ætla að skila frábærum árangri: www.ejs.is/skolavefur .

Written by bardurorn

ágúst 12, 2009 at 02:05

Skrifað í Vefur, auglýsingar

Tagged with , ,