Twitter á Íslandi
Rupal Parekh ( @rupalparekh ) hjá AdvertisingAge birti áhugaverða grein á bloggi AdAge fyrir stuttu. Þar tekur hún fyrir fyrirtæki sem eru ráðgjafar í rafrænni markaðssetningu en standa sig illa sjálf í sinni rafrænu markaðssetningu. Greinin dregur full dökka mynd af bransanum en það eru nokkur mjög góð tíst frá auglýsinga- og ráðgjafastofum og mjög mikið af frábærum tístum frá starfsfólki stofanna. Ratsjá (@ratsja) er búin að tísta í að verða ár og tveir starfsmenn stofunnar enn lengur @bardur og @benediktrafn. Ratsjár tístinu er haldið uppi af @bardur og @benediktrafn og á að vera á faglegum nótum og að mestu um markaðsmál og birtingar þó svo að auðvitað sé það oft mun persónulegra en bloggið. Markaðssvæði Ratsjár er nær eingöngu Ísland og því er tístið á íslensku. Okkar persónulegu tíst eru svo mun fjölbreyttari og persónulegri og að miklu leiti á ensku, við bökkum svo upp Ratsjár tístið með okkar tístum.
Ratsjá hefur notað Twitter með góðum árangri í markaðsstarfi og má þar líklega fyrst nefna @hannerkominn sem var teaser fyrir Polar Beer og líklega fyrsta markaðsaðgerðin á Íslandi sem nýtti Twitter. Því miður sér Ratsjá ekki lengur um það vörumerki og virðist öll rafræn markaðssetning horfin eftir það. Ratsjá var einnig í ráðgjafavinnu fyrir Framsókn í kosningunum og er Framsókn enn þann dag í dag lang virkasta pólitíska aflið á Twitter ( @framsokn ). Eymundsson hefur einnig komið sér upp nokkuð virkum twitter account með ágætis árangri (@eymundsson). Það eru klárlega mikil tækifæri fyrir smásala að nýta sér twitter bæði til að byggja upp persónulegt brand en einnig til að nýta ser mjög hraðvirkan og ódýran sölukanal, eitt besta dæmið um þessháttar vinnu er líklega @delloutlet sem hefur skilað Dell gríðarlega jákvæðri niðurstöðu.
Við hjá Ratsjá fylgjumst með ansi mörgum erlendum tístum sem tengjast auglýsingastofum, birtingahúsum og markaðsráðgjöfum má þar nefna t.d. @ogilvy , @razorfish, @agencypaj , @McCann_NY og @BBHLabs. Til viðbótar fylgjumst við mjög mörgum persónulegum tístum um sama málefni.
Á Íslandi er að finna fjölmörg dæmi um léleg tíst en hér er þó einnig að finna mikinn fjölda frábærra tístara. Twitter senan á Íslandi er enn svolítið tækni-nördaleg, mikið af fólki sem vinnur í upplýsingatækni. Nokkur góð dæmi og vert að fylgja eru: @hjalli , @gommit, @rosastef, @andresjons, @frostis , @jonsval , @allimetall og @netgaur . Nokkur fyrirtæki og félagasamtök eru einnig með áhugaverð tíst t.d. @raduneytid , @graenland, @takktakk, @gogoyogo , @gogogic , @datamarket , @icelandexpress og @icelandair (Ath. ágætis lista á síðu Andrésar Jóns almannatengils ). Innsk 8.jul @icelanders eru að kanna hve stór twitterhópurinn er á Íslandi og skv. kynningu á #RVKTweetup er hópurinn nú rúmlega 1.500 þó svo að aðeins um 500 séu virkir (Sjá kynningu á QIK).
Læt hér fylgja með samantekt Rupal Parekh á mikilvægustu punktum þegar fyrirtæki ákveða að byrja að tísta, hvort sem við erum sammála þeim eða ekki:
| Thinking of Tweeting? There’s no silver bullet when it comes to Twitter, but here is some common-sense logic agencies should apply to their strategies. |
| Don’t over-promote. Of course you want to use Twitter to build your agency’s brand, but don’t hit people over the head with a litany of press releases.
Be human. Attach a personality — a name, a photo — to your Twitter feed and balance promoting your brand with some personal updates so followers can get a sense of your company culture. Remember, Twitter is public! A client probably won’t appreciate your tweeting “Ouch, got a nasty hangover” when you’re late to the meeting. Keep clients looped. Be sure to share your agency’s Twitter strategy with your clients. Get permission if you want to mention one by name, and don’t forget that a lot of your work is proprietary. Don’t let a careless misstep to cost you the relationship. Listen. Know what people are saying about you on Twitter. Use search.twitter.com or an application such as TweetDeck to monitor the chatter. Respond. The point of being on Twitter is to engage with people who know your agency, as well as those who don’t and want to learn more about you. If followers comment on your feed or send you direct messages, get back to them promptly. Remember, it’s a conversation. Keep expectations in check. A Twitter strategy does not make your agency “social.” Try out tools internally to share knowledge, exchange ideas and — best yet — encourage learning that you can pass along to clients. Identify impersonators. Accounts purporting to be someone or something they’re not violate Twitter’s terms of service. So if someone’s got their paws on yours, let Twitter know. – Rupal Parekh |
Innsk 8.jul @icelanders eru að kanna hve stór twitterhópurinn er á Íslandi og skv. kynningu á #retwest er hópurinn nú rúmlega 1.500 þó svo að aðeins um 500 séu virkir (Sjá kynningu á QIK). – Bárður
bardurorn
júlí 8, 2009 at 12:52