Ratsjá

Ratsjá er fyrirtæki á sviði auglýsinga- og markaðsráðgjafar

Archive for október 2008

Ísland á EM og Facebook!

without comments

Laugardalur i dag

Laugardalur í dag

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur einn stærsta leik íslenskrar knattaspyrnusögu í kvöld þegar liðið tekur á móti Írum á Laugardalsvelli. Takist íslensku stelpunum að fara með sigur af hólmi kemst liðið í úrslit Evrópukeppninnar sem fram fer í Finnlandi á næsta ári.
Aldrei fyrr hefur íslenskt knattspyrnulandslið verið eins nálægt því að tryggja sér sæti í úrslitakeppni stórmóts.  Stelpurnar hafa óskað eftir stuðningi þjóðarinnar og mun hver rödd skipta þar máli.

Miðasala fer einnig fram á netinu, á www.midi.is. Leikurinn hefst kl. 18:10 en miðasala hefst á Laugardalsvelli kl. 12:00.

Laugardagsvöllurinn daginn fyrir leik

Ratsjá hefur komið upp stuðningsmannasíðu fyrir liðið á Facebook. Á skömmum tíma fyrir leikina gegn Slóveníu og Grikklandi síðastliðið vor tókst að ná töluvert stórum hópi á aðdáendasíðu kvennalandsliðsins miðað við það sem gengur og gerist með íslenskar aðdáendasíður á Facebook. Síðan hafa nokkur hundruð manns bæst í hópinn, aðdáendur liðsins hafa verið duglegir við að skiptast á skoðunum um málefni liðsins og hafa sumir sent inn fjölda ljósmynda sem tengjast landsliðinu.

Aðdáendasíða liðsins hefur því reynst vel sem hluti af kynningarefni íslenska kvennalandsliðsins auk þess sem hún er prýðilegur vettvangur fyrir stuðningsmenn þess að skiptast á skoðunum. Hún er einnig ágætt markaðstól þar sem auðvelt er að koma á framfæri upplýsingum um íslenska liðið.

———

Erlend stórfyrirtæki hafa tileinkað sér Facebook og þá möguleika sem vefsvæðið býður uppá í markaðssetningu. Þannig hafa vörur eins og iPhone og Nutella mörg hundruð þúsund aðdáendur á Facebook. Íslenskar vörur eiga einnig sínar aðdáendasíður á netinu, þó aðdáendurnir séu aðeins færri, sem dæmi má nefna Malt, Maxí popp og Opal.

Written by Benedikt Rafn

október 30, 2008 at 11:53

Skrifað í Ratsjá, Vefur

Tagged with ,

Óhefbundnar auglýsingastaðsetningar

without comments

Nýlegar rannsóknir benda til þess að auglýsingar á matarborðum flugsæta séu góð fjárfesting. 79% af flugfarþegum í amerísku innanlandsflugi muna eftir auglýsingunum og um 26% hafa jákvæða svörun jafnvel kaup á vöru eða þjónustu sem auglýst var. Bifreiðar og þjónusta komu best út úr þessum könnunum en bifreiðaagulýsingar ná 83% eftirtekt og þjónusta fær um 86% jákvæða svörun. Sjónvarpsauglýsingar um borð í vélunum virðast hins vegar skila verri árangri en 12,2% muna eftir auglýsingum í sjónvarpinu og um 8% sýna jákvæða svörun.

Flugfarþegar eru áhugaverður markhópur. Farþegar í innanlandsflugi eru þverskurður af þjóðinni þó svo að ætla megi að þar sé stórt hlutfall opinberra starfsmanna og viðskiptamanna, sérstaklega á stærri áfangastaði. Hópurinn hlýtur að vera áhugaverður fyrir margar sakir. Flugfarþegar innanlands nýta ferðina oftar en ekki til að versla auk þess sem þeir nýta sér margskonar aðra þjónustu á áfangastað s.s. bílaleigubíla, veitingastaði, hótel, osfrv. Fólk úr viðskiptalífinu og starfsmenn opinberra stofnanna er yfirleitt vel menntað og með góðar tekjur og ætti því að vera vænlegur kostur fyrir auglýsendur.

Til þess að þessi auglýsingakostur verði að áhugaverðum kosti verður verðið hinsvegar að endurspegla fjölda farþega og hins vegar eftirtektar- og kauphneigðartölur.

Heimild: Rannsóknarsamantekt unnin af Triad Communications og birt í MediaPost.

Written by bardurorn

október 27, 2008 at 10:32

Sjónvarpsauglýsingar framtíðarinnar

without comments

Hefðbundar sjónvarpsauglýsingar hafa um nokkurt skeið átt undir högg að sækja bæði austan hafs og vestan. Stafræn sjónvarpsupptökutæki, t.a.m. TiVo í Bandaríkjunum og Sky box í Bretlandi gera sjónvarpsáhorfandanum kleift að annað hvort hraðspóla yfir auglýsingahólf eða hreinlega sleppa þeim. Þetta er vissulega bagalegt fyrir auglýsandann en talið er að um 11% auglýsinga í USA missi marks þar sem áhorfandinn sneiðir fram hjá þeim með hjálp upptökutækjanna. Þarna eru gríðarlegir fjármunir í húfi fyrir auglýsendur.
Þeir hafa því leitað annarra leiða til að koma vöru sinni og / eða þjónustu fyrir augu sjónvarpsáhorfenda. Staðsetning vöru inní þáttum og kvikmyndum í samráði við framleiðendur er þekkt leið (product placement / product integration), þá hafa bandarískar sjónvarpsstöðvar auglýst dagskrárefni sitt á auglýsingaborðum sem birtast á skjánum ofan í annað sjónvarpsenfni auk þess sem nú eru farin að birtast vörumerki og skilaboð frá auglýsendum inní þáttum rétt áður en kemur að auglýsingahléi. En nú má segja að þessi þróun sé að komast á nýtt stig.

Breska sjónvarpsstöðin ITV tilkynnti nýverið að hún muni áður en langt um líður hefja birtingu sjónvarpsauglýsinga inní þáttum með hjálp tölvutækni. Stöðin og tæknimenn á hennar vegum hafa þróað flókinn algorithma sem gerir auglýsendum kleyft að auglýsa á hlutlausum myndflötum inní miðjum sjónvarpsþáttum, s.s. á auðum veggfleti eða heiðum himni. Kallast þessi tækni “automatically placed overlay advertising” og eru þegar hafnar tilraunir með þessar tegundir auglýsinga í vefsjónvarpi ITV.

Eins og staðan er í Bretlandi í dag þá eru óbeinar auglýsingar óleyfilegar og sömu sögu er að segja af vörustaðsetningu, eða “product placement”. Það verður fróðlegt að sjá hvernig löggjafinn tekur á þessari tækni í Bretlandi, en gera má ráð fyrir að það verði auðveldara að auglýsa með þessum hætti vestan hafs.

Handan við hornið eru því auglýsingar sem áhorfandinn kemst ekki hjá því að sjá þegar hann horfir á uppáhalds sjónvarpsþáttinn sinn. Það á svo eftir að koma í ljós hvernig áhorfandinn bregst við þess háttar auglýsingaáreiti.

Written by Benedikt Rafn

október 16, 2008 at 15:00