Ratsjá

Ratsjá er fyrirtæki á sviði auglýsinga- og markaðsráðgjafar

TM, vefur og kvennaknattspyrna

with one comment

tryggurÍslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur verið á mikilli siglingu undanfarin tvö ár og má segja að hápunkti verði náð í lok mánaðarins þegar liðið tekur þátt í úrslitakeppni Evrópumótsins í Finnlandi. TM hefur staðið að baki íslenskri kvennaknattspyrnu um nokkuð langt skeið og mun TM kosta útsendingar á RÚV frá leikjum íslenska liðsins á EM. TM hefur undanfarin ár verið í samstarfi við Margréti Láru Viðarsdóttur, íþróttamann ársins 2007, um að auka hróður íslenskrar kvennaknattspyrnu. Margrét Lára hefur verið áberandi í auglýsingum TM auk þess sem vefsíðan mlv.is var sett upp þar sem hægt er að finna myndbönd með Margréti Láru ásamt bloggi íþróttahetjunnar.

TM hefur í samstarfi við Ratsjá lagt mikið uppúr góðri eftirtekt á vef, í vor hleypti TM af stokkunum nýjum farsímavef, m.tm.is, sem var meðal annars auglýstur á farsímavef símaskrárinnar, mja.is. Þá hefur TM einnig látið til sín taka á Facebook, en í sumar stóð TM fyrir vinaleik á samfélagsvefnum með góðum árangri.
Í tengslum við EM kvenna er TM með skemmtilega vefauglýsingu á mbl.is þar sem tveir vefborðar vinna saman;  Margrét Lára sparkar bolta úr auglýsingaborða sínum, sem er hægra megin á fréttasíðu, yfir í sjampóauglýsingu sem er vinstra megin.
Skemmtileg vefauglýsing sem sjá má hér.

Written by Benedikt Rafn

ágúst 17, 2009 at 22:43

Skrifað í Birtingar, Vefur, auglýsingar

Haustherferðir

with 2 comments

skólavefur EJSNú eru allir komnir aftur til starfa eftir sumarfrí og frekar rólegan júlímánuð. Við erum búin að vera að keyra mjög góða herferð fyrir EJS sem virðist ætla að skila frábærum árangri: www.ejs.is/skolavefur .

Written by bardurorn

ágúst 12, 2009 at 02:05

Skrifað í Vefur, auglýsingar

Tagged with , ,

Brjálaðir banner tónleikar!

leave a comment »

poster-banner-concert-UKEin af okkar uppáhalds herferðum síðasta árs var gerð af Boondoggle fyrir Axio bankann í Belgíu. Herferðin vann til verðlauna í öllum flokkum á Cannes Lions (5 ljón).

Hér er case-ið:

Eins og góðri stofu sæmir þá bjuggu Boondoogle til myndband eftir að komið var heim með verðlaunin, mjög sniðugt:

Boondoggle er áhugaverð stofa sem leggur mikinn metnað í creative digital hugsun sem skilaði sér í þessu frábæra verkefni. Við sem birtingafyrirtæki finnum mikla samsvörun við þetta verkefni enda eru mörk birtinga, auglýsingagerðar og veffhönnunar sífelt að verða ósskýrari.

Written by bardurorn

júlí 24, 2009 at 14:03

Twitter á Íslandi

with one comment

Rupal Parekh ( @rupalparekh ) hjá AdvertisingAge birti áhugaverða grein á bloggi AdAge fyrir stuttu. Þar tekur hún fyrir fyrirtæki sem eru ráðgjafar í rafrænni markaðssetningu en standa sig illa sjálf í sinni rafrænu markaðssetningu. Greinin dregur full dökka mynd af bransanum en það eru nokkur mjög góð tíst frá auglýsinga- og ráðgjafastofum og mjög mikið af frábærum tístum frá starfsfólki stofanna. Ratsjá (@ratsja) er búin að tísta í að verða ár og tveir starfsmenn stofunnar enn lengur @bardur og @benediktrafn. Ratsjár tístinu er haldið uppi af @bardur og @benediktrafn og á að vera á faglegum nótum og að mestu um markaðsmál og birtingar þó svo að auðvitað sé það oft mun persónulegra en bloggið.  Markaðssvæði Ratsjár er nær eingöngu Ísland og því er tístið á íslensku. Okkar persónulegu tíst eru svo mun fjölbreyttari og persónulegri og að miklu leiti á ensku, við bökkum svo upp Ratsjár tístið með okkar tístum.

Ratsjá hefur notað Twitter með góðum árangri í markaðsstarfi og má þar líklega fyrst nefna @hannerkominn sem var teaser fyrir Polar Beer og líklega fyrsta markaðsaðgerðin á Íslandi sem nýtti Twitter. Því miður sér Ratsjá ekki lengur um það vörumerki og virðist öll rafræn markaðssetning horfin eftir það. Ratsjá var einnig í ráðgjafavinnu fyrir Framsókn í kosningunum og er Framsókn enn þann dag í dag lang virkasta pólitíska aflið á Twitter ( @framsokn ). Eymundsson hefur einnig komið sér upp nokkuð virkum twitter account með ágætis árangri (@eymundsson). Það eru klárlega mikil tækifæri fyrir smásala að nýta sér twitter bæði til að byggja upp persónulegt brand en einnig til að nýta ser mjög hraðvirkan og ódýran sölukanal, eitt besta dæmið um þessháttar vinnu er líklega @delloutlet sem hefur skilað Dell gríðarlega jákvæðri niðurstöðu.

Við hjá Ratsjá fylgjumst með ansi mörgum erlendum tístum sem tengjast auglýsingastofum, birtingahúsum og markaðsráðgjöfum má þar nefna t.d. @ogilvy , @razorfish, @agencypaj , @McCann_NY og @BBHLabs. Til viðbótar fylgjumst við mjög mörgum persónulegum tístum um sama málefni.

Á Íslandi er að finna fjölmörg dæmi um léleg tíst en hér er þó einnig að finna mikinn fjölda frábærra tístara. Twitter senan á Íslandi er enn svolítið tækni-nördaleg, mikið af fólki sem vinnur í upplýsingatækni. Nokkur góð dæmi og vert að fylgja eru: @hjalli , @gommit, @rosastef, @andresjons, @frostis , @jonsval , @allimetall og @netgaur . Nokkur fyrirtæki og félagasamtök eru einnig með áhugaverð tíst t.d. @raduneytid , @graenland, @takktakk, @gogoyogo , @gogogic , @datamarket , @icelandexpress og @icelandair (Ath. ágætis lista á síðu Andrésar Jóns almannatengils ). Innsk 8.jul @icelanders eru að kanna hve stór twitterhópurinn er á Íslandi og skv. kynningu á #RVKTweetup er hópurinn nú rúmlega 1.500 þó svo að aðeins um 500 séu virkir (Sjá kynningu á QIK).

Læt hér fylgja með samantekt Rupal Parekh á mikilvægustu punktum þegar fyrirtæki ákveða að byrja að tísta, hvort sem við erum sammála þeim eða ekki:

Thinking of Tweeting?
There’s no silver bullet when it comes to Twitter, but here is some common-sense logic agencies should apply to their strategies.
Don’t over-promote. Of course you want to use Twitter to build your agency’s brand, but don’t hit people over the head with a litany of press releases.

Be human. Attach a personality — a name, a photo — to your Twitter feed and balance promoting your brand with some personal updates so followers can get a sense of your company culture.

Remember, Twitter is public! A client probably won’t appreciate your tweeting “Ouch, got a nasty hangover” when you’re late to the meeting.

Keep clients looped. Be sure to share your agency’s Twitter strategy with your clients. Get permission if you want to mention one by name, and don’t forget that a lot of your work is proprietary. Don’t let a careless misstep to cost you the relationship.

Listen. Know what people are saying about you on Twitter. Use search.twitter.com or an application such as TweetDeck to monitor the chatter.

Respond. The point of being on Twitter is to engage with people who know your agency, as well as those who don’t and want to learn more about you. If followers comment on your feed or send you direct messages, get back to them promptly. Remember, it’s a conversation.

Keep expectations in check. A Twitter strategy does not make your agency “social.” Try out tools internally to share knowledge, exchange ideas and — best yet — encourage learning that you can pass along to clients.

Identify impersonators. Accounts purporting to be someone or something they’re not violate Twitter’s terms of service. So if someone’s got their paws on yours, let Twitter know.

– Rupal Parekh

Written by bardurorn

júlí 7, 2009 at 22:34

Skrifað í twitter

Kominn tími á gymmið?

leave a comment »

Auglýsendur leita ýmissa leiða til þess að vekja athygli á sér og sinni vöru / þjónustu. Auglýsingastofan N=5 í Amsterdam fékk það verkefni að búa til auglýsingar fyrir keðju líkamsræktarstöðva í Hollandi, Fitness First. N=5 fékk fékk þessa hugmynd:

þyngd

Setan í strætóskýlinu er vikt sem tengd er við auglýsingaskiltið sem svo sýnir öllum í nágrenni skýlisins hversu mikið hlass aumingja manneskjan sem á setunni situr er. Þetta á auðvitað að vekja sektarkennd hjá sitjandanum yfir öllu nammiátinu og hreyfingarleysinu og fyrir vikið hleypur fórnarlambið rakleitt í næsta Fitness First og kaupir sér árskort.

Þessi aðferð hefur þó örugglega vakið athygli fleirri en bara þeirra sem setjast á viktina.

Written by Benedikt Rafn

júní 1, 2009 at 12:10

Skrifað í auglýsingar

Samfélagsmiðlar og kreppan

leave a comment »

social media mixMörg fyrirtæki hafa neyðst til þess draga úr umsvifum sínum á auglýsingamarkaði hér á landi að undanförnu og þarf engan að undra það. Svipaða sögu er að segja af auglýsingamarkaði í Bandaríkjunum þar sem efnahagur landsins er í mestu lægð í áratugi eins og svo víða annars staðar. Kreppan bitnar þó ekki á öllum miðlum því rannsóknir sýna að 53% fyrirtækja ætla að auka hlut samfélagsvefja í markaðsáætlunum sínum og 42% ætla ekki að minnka auglýsingafé til þess sama.
Því ætla 95% bandarískra fyrirtækja að auka við auglýsingar á samfélagsvefjum  í yfirstandandi kreppu eða ráðstafa sömu upphæð. Ástæðurnar eru ýmsar, meðal annars þær að samfélagsvefir njóta mikilla vinsælda, auðvelt er að nálgast fyrirfram skilgreinda markhópa og auglýsingar á þessum vefjum eru yfirleit ódýrar. Því til staðfestingar má benda á að þrír af hverjum fjórum bandarískum auglýsendum eyddu lægri upphæð en $100.000 í auglýsingar á samfélagsvefjum á síðasta ári.

Sjá nánar hér.

Written by Benedikt Rafn

mars 23, 2009 at 10:03

Twitter á TED

with one comment

Evan Williams CEO hjá IDEO með skemmtilegan fyrirlestur um Twitter. Við hjá Ratsjá erum mjög hrifin af Twitter en líka af góðum glærum, þetta sameinar það tvennt!

more about " Twitter á TED", posted with vodpod

Written by bardurorn

mars 3, 2009 at 13:00

Skrifað í 1

Ratsjá

leave a comment »

ratsja_merkiRatsjá auglýsir nú á forsíðu já.is.  Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að bjóða þjónustu fyrirtækisins til einstaklinga og fyrirtækja sem ekki hafa áður nýtt sér þjónustu birtingafyrirtækis en einnig sá að kynnast nýjum vef af eigin raun. Ratsjá sérhæfir sig í ráðgjöf við gerð og birtingu auglýsinga. Til þess notar fyrirtækið hefðbundnar nálganir birtingarhúsa og styðst m.a. við gögn úr rafrænum mælingum Capacent á ljósvakamiðlum. Ratsjá leggjur mikla áherslu á þáttöku ráðgjafa í ákvörðunarferlinu frá fyrstu skrefum til loka verkefna auk þess sem við lítum á nýsköpun í þjónustu sem skyldu. Undanfarið ár hefur Ratsjá lagt mikinn metnað í vefbirtingar og árangursmælingar tengdum þeim. Fyrirtæki virðast vera að færa stærri hluta af sínu markaðsfé á vef auk þess sem nýir miðlar eru í boði. Seinasta ár var klárlega ár samfélagsvefja með Facebook í fararbroddi, Ratsjá hefur náð mjög góðum mælanlegum árangri á þessum vefjum í bland við hefðbundna vefmiðla. Að lokum er það yfirsýn og þekking á miðlum og markhópum sem gerir útslagið, það ásamt nánu og miklu sambandi við viðskiptavini og auglýsingastofu er lykillinn að góðum árangri. Hjá Ratsjá er enginn kúnni of stór eða lítill, áskorunin liggur í verkunum og árangrinum en ekki stærðinni. Fyrirtækið hefur á undanförnu ári unnið allt frá umfangsmiklum auglýsingaherferðum þvert á alla miðla niður í lítil sérhæfð verkefni á Facebook fyrir einyrkja eða félagasamtök. Við bjóðum því alla áhugasama velkomna, endilega sendið okkur fyrirspurn á ratsja@ratsja.is eða hafið samband í síma 512-4500. Við minnum á að Ratsjá er að finna á Facebook , LinkedIn , Twitter og á sérstakri mobile-síðu.

Superbowl

leave a comment »

Úrslitaleikur ameríska fótboltans, Superbowl, er í kvöld. Í venjulegu árferði frumsýna stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna nýjar auglýsingar og þykir mörgum ekki síður skemmtilegt að fylgjast með auglýsingahléum í Ofurskálinni en úrslitaleiknum sjálfum. Það er hins vegar fátt vejnulegt við það árferði sem bandarísk fyrirtæki búa við í dag (og þótt víðar væri leitað!) og hafa nokkrir stórir auglýsendur ákveðið að auglýsa ekki í Ofurskálinni þetta árið. Fed Ex og General Motors verða ekki með auglýsingu í útsendingunni í kvöld, en þessi fyrirtæki hafa undanfarin 10 ár verið einna frekust til auglýsingaplássins í Ofurskálinni.
Þá ákvað Miller bjórframleiðandinn að skera verulega niður. Í stað þess að borga 3 milljónir dala (344 milljónir króna) fyrir 30 sekúndna auglýsingu ákváðu stjórnendur Miller að spara með því að birta auglýsingu í Ofurskálinni sem er aðeins 1 sekúnda að lengd:

Miller setti einnig á vefinn fjölmargar örauglýsingar sem ekki náðu því að komast í sjónvarp:

Þó svo margir auglýsendur haldi þétt utan um veskin sín um þessar mundir þá hefur ekki gengið illa að selja í auglýsingahólfin á Superbowl. Það virðist ekki há auglýsingasölunni verulega að sekúnduverðið hefur aldrei verið hærra, eða 3 milljónir dala fyrir 30 sekúndur eins og áður sagði – um miðjan janúar var búið að fylla í yfir 90% af auglýsingatíma úrslitaleiksins.

Auglýsingar í Superbowl 2009 má sjá hér.

Written by Benedikt Rafn

febrúar 2, 2009 at 01:26

Skrifað í auglýsingar

Mobile Advertising

leave a comment »

ja_mobileRatsjá hefur frá stofnun kannað markaðinn fyrir mobile auglýsingar. Framboðið hefur verið lítið ef frá eru talin textaskilaboð sem símafyrirtækin bjóða uppá en landslagið er smám saman að breytast. Áhugaverðir vefir Nova og nú nýlega M-ið hjá símanum hafa bætt við auglýsingamöguleikum auk þess sem Mbl hefur átt góða innkomu. Þrátt fyrir gríðarlega farsímaeign Íslendinga og fjölda tækja með góðum skjá og hröðum tengingum virðist vefnotkun Íslendinga í gegnum farsíma ekki haldast í hendur við vefnotkun víða annars staðar. Margt hefur auðvitað áhrif á þetta s.s. verð á þjónustu, almenn tölvueign, stuttur ferðatími o.s.frv. Þetta mynstur virðist vera að breytast, farsímanetnotkun er að aukast og því sjáum við tækifæri í auglýsingum á þessum miðli, bæði vegna formsins en einnig vegna þess að við náum til viðskiptavina þegar þeir eru á ferðinni, ekki endilega á skrifstofunni eða heima.
Nokkur vandamál koma þó upp við svona markaðssetningu eins og t.d. nákvæm árangursmæling því hefðbundin vefgreiningartól virka illa eða ekki í þessum miðli. Við stukkum því til um leið og við fréttum af nýjum mobile vef já.is ( http://m.ja.is ), settum þar inn litla auglýsingu og settum samhliða því upp litla mobile síðu fyrir Ratsjá ( http://m.ratsja.is ) sem í raun og veru er einungis tweet feed frá starfsfólki Ratsjár. Tilgangurinn er fyrst og fremst að prófa ný vefgreiningartæki, kynnast miðlinum betur og þeim hópi sem er virkur notandi. Fyrstu skrefin lofa góðu og við erum að átta okkur betur á mælitækjunum.

Written by bardurorn

janúar 28, 2009 at 12:25